IMG Golf Fitness
Vellíðan - Leikni - Árangur
IMG Golf Fitness námskeiðin stuðla að bættri heilsu og betra golfi.
Skráning er hafin á námskeið sem hefjast í janúar!
IMG Golf Fitness námskeiðin eru sniðin að þörfum kylfinga 50 ára og eldri. Æfingar taka mið af einstaklingsmiðaðri getu þar sem hægt er að aðlaga æfingarnar að persónulegum þörfum. Markvisst er unnið í að bæta hreyfigetu líkamans í gegnum alhliða styrktar- og liðleikaþjálfun. Sérstök áhersla er á styrktaræfingar fyrir miðju líkamans og mjaðmasvæði, góðar og liðkandi teygjuæfingar fyrir allan líkamann sem og æfingar sem bæta jafnvægisskyn, samhæfingu og líkamsvitund. Líkamleg vellíðan og aukin hreyfigeta hefur jákvæð áhrif á spilamennskuna.
Golf Fitness tímarnir eru fullir af fjölbreyttum og orkugefandi æfingum sem stuðla að hreysti og vellíðan. Mjúkir og endurnærandi tímar sem efla bæði kraft og mýkt. Kjörin líkamsrækt fyrir kylfinga en einnig frábær fyrir alla sem vilja bæta líkamlegt form.
- Tímar eru þriðjudaga og fimmtudaga 17:05 – 17:50
- Tímabil 1, 2x í viku: 9.01 – 13.02. Verð: 21.500 kr.
- Tímabil 2, 2x í viku: 17.02 – 27.03. Verð: 23.400 kr.
- Tímabil 9.01 – 27.03, 1x í viku, Mæting þriðjudaga eða fimmtudaga, 11 skipti. Verð: 21.500 kr.
- 2x í viku er vænlegra til árangurs en ef þú ert tímabundin(-inn) þá er mæting 1x í viku betra en ekki neitt.
- Nýtt! Aðgangur að lokuðum facebookhóp fylgir. Fb-aðgangur inniheldur fjölda æfinga sem hægt er að bæta við sig og gera hvar og hvenær sem er. Kærkomin viðbót við námskeið.
- Aðstaðan – kennsla fer fram í íþróttamiðstöðinni Ásgarði Garðabæ, í speglasalnum á 2.hæð. Mjög fín aðstaða með aðgengi að búningsklefum, Einnig er tilvalið að nýta sér sundlaugina með en þar er infrarauð gufa ásamt heitum og köldum pottum. Aðgangur að sundlaug greiðist sér í afgreiðslu sundlaugar.
Golf Fitness námskeiðin eru fyrir konur & karla.