Skip to content

Um IMG Heilsurækt

– Það er aldrei of seint að byrja –

Öll námskeið á vegum IMG heilsuræktar eru sérstaklega þróuð út frá danstengdri og fjölþættri líkamsrækt með það að markmiði að auka líkamlegt hreysti og vellíðan. Lögð er áhersla á gæðakennslu, persónulegt viðmót og öryggi í æfingum. Tímarnir hjá IMG heilsurækt eru í formi hóptímakennslu, ætlaðir 50 ára og eldri, byrjendum sem og lengra komnum. Með hækkandi aldri er sérstaklega mikilvægt að finna sér líkamsrækt við hæfi sem og hvetjandi andrúmsloft. Hóptímar í góðum félagsskap eru sérstaklega líflegt og skemmtilegt æfingaform. Komdu og vertu með!

Reglubundin þjálfun skilar sér í bættri heilsu

Fjölbreyttni í æfingum og reglubundin ástundun tryggir þér árangur að bættri heilsu. Ef þú ert tímabundin/n er 1x í viku betra en ekkert, 2 – 3x í viku er enn betra 🙂 Aðalmálið er að finna líkamsrækt við sitt hæfi og byrja að æfa.

Frír prufutími!

Þér velkomið að mæta í frían prufutíma. Skráning í prufutíma er í gegnum irma@internet.is 

Þjálfarinn þinn

Irma á að baki 40 ára feril sem dans- og líkamsræktarkennari en dans- og líkamsþjálfun hefur verið hennar lífsstíll frá barnæsku. Hún æfði afreksmiðað sem barn og unglingur, var í meistaraflokki í fimleikum hjá Gerplu og lauk 10 ára dansnámi frá Jazzballettskóla Báru, þar sem hún starfaði áður við kennslu og stjórnunarstörf. Irma lauk meistaranámi í listkennslu frá Listaháskóla Íslands árið 2012 og er hún með kennararéttindi sem sviðslistakennari á grunn- og framhaldsskólastigi. Í gegnum árin hefur Irma sótt fjölmörg kennaranámskeið heima og erlendis í dansi og líkamsrækt. Nýverið lauk hún kennaranámskeiði í bandvefslosun hjá Heklu Guðmundsdóttur og hlaut hún við það réttindi til að kenna Body Reroll boltanuddtækni. 

Helstu áhugamál Irmu fyrir utan dans og líkamsrækt eru golf og ferðalög en auk þess að kenna líkamsrækt starfar Irma sem fararstjóri í golfferðum Golfskálans á Spáni. Irma er mjög metnaðarfull og leggur sig 100% fram við allt sem hún tekur sér fyrir hendur. 

Kennslustaðir

Íþróttamiðstöðin Ásgarði, Garðabæ

Námskeiðin í Ásgarði fara fram í speglasal á 2.hæð. Frábær aðstaða er í Íþróttamiðstöðinni Ásgarði. Hægt er að bæta við sig æfingum í tækjasal ef vill og tilvalið er að nýta sér sundlaugina ásamt heitum og köldum pottum.

Þeir sem það vilja, greiða fyrir aðgang að sundlaug og/eða tækjasal í móttökunni.

Golfskáli GÖ, Öndverðarnesi

Undanfarin ár hefur Irma boðið upp á Golf Fitness námskeið í Öndverðarnesi, í samstarfi við GÖ. Yfir vetrartímann liggur hefðbundin starfsemi GÖ niðri og er því tilvalið að nýta aðstöðu golfskálans til heilsueflingar fyrir kylfinga og sumarbústaðaeigendur á svæðinu. Salur golfskálans er rúmgóður og hlýlegur, frábær aðstaða í fallegu umhverfi.

Um IMG Heilsurækt

– Það er aldrei of seint að byrja –

Öll námskeið á vegum IMG heilsuræktar eru sérstaklega þróuð út frá danstengdri og fjölþættri líkamsrækt með það að markmiði að auka líkamlegt hreysti og vellíðan. Lögð er áhersla á gæðakennslu, persónulegt viðmót og öryggi í æfingum. Tímarnir hjá IMG eru í formi hóptímakennslu, ætlaðir 50 ára og eldri, byrjendum sem og lengra komnum. Með hækkandi aldri er sérstaklega mikilvægt að finna sér líkamsrækt við hæfi sem og hvetjandi andrúmsloft. Hóptímar í góðum félagsskap eru sérstaklega líflegt og skemmtilegt æfingaform. Komdu og vertu með!

Reglubundin þjálfun skilar sér í bættri heilsu

Fjölbreyttni í æfingum og reglubundin ástundun tryggir þér árangur að bættri heilsu. Ef þú ert tímabundin/n er 1x í viku betra en ekkert, 2 – 3x í viku er enn betra 🙂 Aðalmálið er að finna líkamsrækt við sitt hæfi og byrja að æfa.

Frír prufutími!

Þér velkomið að mæta í frían prufutíma. Skráning í prufutíma og allar nánari upplýsingar í gegnum irma@internet.is

Þjálfarinn þinn

Irma á að baki 40 ára feril sem dans- og líkamsræktarkennari en dans- og líkamsþjálfun hefur verið hennar lífsstíll frá barnæsku. Hún æfði afreksmiðað sem barn og unglingur, var í meistaraflokki í fimleikum hjá Gerplu og lauk 10 ára dansnámi frá Jazzballettskóla Báru, þar sem hún starfaði áður við kennslu og stjórnunarstörf. Irma lauk meistaranámi í listkennslu frá Listaháskóla Íslands árið 2012 og er hún með kennararéttindi sem sviðslistakennari á grunn- og framhaldsskólastigi. Í gegnum árin hefur Irma sótt fjölmörg kennaranámskeið heima og erlendis í dansi og líkamsrækt. Nýverið lauk hún kennaranámskeiði í bandvefslosun hjá Heklu Guðmundsdóttur og hlaut hún við það réttindi til að kenna Body Reroll boltanuddtækni. 

Helstu áhugamál Irmu fyrir utan dans og líkamsrækt eru golf og ferðalög en auk þess að kenna líkamsrækt starfar Irma sem fararstjóri í golfferðum Golfskálans á Spáni. Irma er mjög metnaðarfull og leggur sig 100% fram við allt sem hún tekur sér fyrir hendur. 

Kennslustaðir

Íþróttamiðstöðin Ásgarður, Garðabæ

Námskeiðin í Ásgarði fara fram í speglasal á 2.hæð. Frábær aðstaða til heilsuræktar er í Íþróttamiðstöðinni Ásgarði. Hægt er að bæta við sig æfingum í tækjasal ef vill og tilvalið er að nýta sér sundlaugina ásamt infarauðri gufu og heitum og köldum pottum. Þeir sem það vilja, greiða fyrir aðgang að sundlaug og/eða tækjasal í móttökunni.